Sendum frítt í öll Póstbox og á Dropp afhendingarstaði

Það er ekkert efni komið. Bættu við efni í þennan reit með því að nota hliðarstikuna.

Image caption appears here

Add your deal, information or promotional text

Almennir skilmálar

Almennt

Neytendur eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun 4F, 4fstore.is. Um notkun vefsíðu og vefverslunar 4F gilda skilmálar þessir. Með því að nota vefsíðu og vefverslun 4F samþykkir og viðurkennir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma.4F, kt.680803-2260,er staðsett aðHagasmára 201 Kópavogi. 4F áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.

 

Verð

Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur. 4F áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.

 

Vörur til einkanota

Vörurnar í vefverslun 4F eru eingöngu til persónulegra nota. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum 4F án tilskilinna leyfa. 4F áskilur sér rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda eftir hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.

 

Nákvæmni upplýsinga

Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

 

Greiðsluleiðir

Hægt er að inna greiðslu af hendi í vefverslun með greiðslukorti. 4F er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt.



Leita